Sameiningarferlið og kæra til Innviðaráðuneytisins
- Sigrún Sverrisdóttir

- May 15
- 1 min read
Föstudaginn 15. maí kom í ljós að innviðaráðuneytið hefur dæmt sameiningarkosningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps ógilda sökum annmarka á framkvæmd.
Þetta þýðir að svokölluð uppkosning mun fara fram samkvæmt reglugerð um sameiningarkosningar sveitarfélaga, þ.e. það verður kosið aftur.
Nú höfum við sem samfélag tækifæri til að vanda enn frekar til verka, fara yfirvegað í sameiningarferlið, velta við öllum steinum, upplýsa íbúa um hvert mikilvægt skref til að tryggja að þeir allir séu meðvitaðir um ferlið. Einnig er ljóst að kosning á vetrarmánuðum er alls ekki fýsilegur kostur.
Í leiðinni viljum við koma á framfæri að kæran snérist aldrei um einstaka persónur heldur annmarka á framkvæmdinni og ferlinu. Sá misskilningur hefur borist okkur til eyrna að kæran væri ádeila á störf kjörnefndar í Árneshreppi en það á sér ekki stoð í raunveruleikanum og viljum við nota þetta tækifæri til að leiðrétta það.
Á morgun göngum við til kosninga og þessi niðurstaða breytir ekki okkar gallhörðu skoðun að tækifærin og framtíðin sé í Árneshreppi. Þeir fiska sem róa og ef við leggjumst öll saman á árarnar þá getur leiðin ekki legið neitt annað en upp á við.
Nýtum okkar lýðræðislega rétt og kjósum framtíð í Árneshreppi!



Comments