top of page

Nýr listi býður fram í Árneshreppi

Í aðdraganda kosninga um mögulega sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps hefur nýr framboðslisti verið kynntur í Árneshreppi. Markmið listans er að bjóða íbúum raunverulegan valkost fyrir þá sem telja að ekki sé tímabært að sameina sveitarfélögin.

Norðurfjarðarhöfn.jpeg

Breiðfylking fólks

Margt sé enn óljóst varðandi mögulega sameiningu og listinn samanstendur af fólki sem telur að hagsmunum Árneshrepps sé betur borgið sem sjálfstætt sveitarfélag.

 

Það er kominn tími til að næsta kynslóð í Árneshreppi axli ábyrgð og leysi okkar tryggu fyrirrennara af, að vernda hagsmuni byggðarinnar. Á listanum er breiðfylking fólks sem annað hvort hefur alist upp í hreppnum eða hefur fest þar rætur eftir að hafa heillast af svæðinu og samfélaginu.

IMG_4099.jpeg

Framtíðarsýn okkar

Djúpavík DJI_0009.JPG
  • Öflugt samfélag sem heldur í sérstöðu sína
  • Fjölga störfum í Árneshreppi
  • Koma okkur á kortið sem fjarvinnustað
  • Að skipuleggja nýjar íbúðarlóðir
  • Opnari stjórnsýsla og aukið íbúasamráð
  • Engar áherslubreytingar varðandi virkjunarframkvæmdir, en mikilvægt að framkvæmdin yrði samfélaginu til góðs með aðkomu að samfélagsverkefnum og sterku aðhaldi varðandi umgengni og frágang.
  • Að berjast fyrir bættum samgöngum og auknum möguleikum á heilsársbúsetu

Samgöngur og fjölgun íbúa lykilatriði fyrir framtíð byggðarinnar

Við leggjum sérstaka áherslu á samgöngumál og fjölgun íbúa sem tvö lykilatriði fyrir framtíð byggðarinnar. Að mati okkar eru bættar samgöngur stærsta hagsmunamál íbúa og forsenda þess að hægt sé að efla atvinnulíf, skapa fleiri störf og gera svæðið raunhæfan kost fyrir fleiri til búsetu.

Samgöngur yfir vetrarmánuðina gera það nánast ómögulegt að halda okkar blómstrandi ferðaþjónustu opinni allt árið sem dregur úr möguleikum á heilsársbúsetu.

“Við viljum að Árneshreppur hafi rödd áfram, sterka rödd sem stefnir fram veginn… en hann verður að vera fær”

Framboð til sveitarstjórnakosninga 2026

Árneshreppur er einstakt sveitarfélag þar sem mögnuð náttúra og sterkt samfélag fara saman. Þar býr fólk sem hefur valið að byggja líf sitt á svæðinu og vill áfram sjá byggðina blómstra.

bottom of page